Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Saltfiskur í 6-lauka sósu
- Hráefni
- » 800 g saltfiskur, útvatnaður
- » 70 g vorlaukur
- » 70 g laukur
- » 70 g rauðlaukur
- » 70 g blaðlaukur
- » 70 g hvítlaukur
- » 70 g perlulaukur
- » 1 dl hvítvín
- » 1 dl fiskisoð
- » 180 g kalt smjör
Aðferð
Afhýðið lauk, rauðlauk og hvítlauk. Skerið vorlauk í grófa bita, lauk, rauðlauk og blaðlauk í strimla, og hvítlauk í sneiðar. Athugið að saltfiskur sem á að steikja þarf að vera betur útvatnaður en saltfiskur sem á að sjóða. Steikið útvötnuð saltfiskstykki í 2–3 mín. á hvorri hlið, steikingartíminn fer eftir þykkt. Haldið fiskinum heitum á meðan þið útbúið sósuna. Steikið allar lauktegundirnar í smjöri á pönnu og bætið síðan hvítvíni og fiskisoði út í. Sjóðið við vægan hita þangað til laukurinn er orðinn meir. Jafnið sósuna með köldu smjöri þegar rétturinn er borin fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/510/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










