Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Orly steiktir saltfisks-strimlar
- Hráefni
- » 800 g saltfiskur, útvatnaður
- » Orly deig:
- » 1 bolli hveiti
- » 1 tsk. salt
- » 1 tsk. sykur
- » 1 tsk. paprikuduft
- » 1 stk. egg
- » 1 msk. ólífuolía
- » 1/2–1 dós pilsner
Aðferð
Skerið útvatnaðan saltfisk í strimla og útbúið síðan orly deigið. Hrærið öllu sem talið er upp í uppskriftinni saman þannig að deigið verði svipað áferðar og vöffludeig. Athugið að það er gott er að bæta einni stífþeyttri eggjahvítu saman við. Áður en fiskurinn er settur út í deigið er gott að velta honum upp úr hveiti þá festist orly deigið betur á fiskinum. Steikið síðan í 180°C heitri olíu þangað til gullin brúnt. Berið fram með hrísgrjónum og hvítlauksmajónessósu.Þessi uppskrift er notuð í Hvítlauksmajónes
Meðlæti
Hvítlauksmajónes
- Hráefni
- » 2 dl majónes
- » 4 msk. rjómi
- » 3 stk. hvítlauksgeirar
- » 1–2 msk. sítrónusafi
- » salt
Aðferð
Afhýðið og saxið hvítlauk og hrærið honum sítrónusafa, salti og rjóma saman við majónesið. Magnið fer eftir smekk og eru uppgefnar tölur aðeins til viðmiðunar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/512/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










