Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Fiskbollur
- Hráefni
- » 400 g þorskflök
- » 1 stk. laukur
- » 2 stk. egg
- » 2 tsk. salt
- » 1 tsk. pipar
- » 2 msk. hveiti
- » 2 msk. kartöflumjöl
- » 3–4 dl mjólk
Aðferð
Roð- og beinhreinsið þorskflökin. Afhýðið laukinn. Hakkið þorskflökin í hakkavél ásamt lauknum. Setjið í hrærivélaskál og bætið eggjum, salti og pipar, hveiti og kartöflumjöli út í. Hrærið saman og þynnið með mjólkinni. Mótið bollur og steikið í smjörlíki á pönnu í 2–3 mín. á hvorri hlið. Brún lauksósa er mjög góð með þessum bollum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/515/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










