Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Ufsabitar í súrsætri sósu
- Hráefni
- » 300 g ufsabitar
- » ólífuolía
- » 1–2 tsk. karrí
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 dl sojasósa frá Kikkoman
- » 20 g jöklasalat
- » 20 g gulrætur
- » 20 g laukur
- » 1 tsk. salt
Aðferð
Byrjið á að útbúa sósuna.
Steikið ufsabitana í olíu á pönnu, á báðum hliðum. Hellið súrsætu sósunni út á pönnuna og látið sjóða. Skerið salat, lauk, og gulrætur í strimla.
Afhýðið og pressið hvítlauk. Setjið karrí, hvítlauk og sojasósu saman við og hrærið í. Berið réttinn fram með hrísgrjónum. Blandið jöklasalati, gulrótum og lauk saman við ufsann í sósunni um leið og þið berið réttinn fram.
Þessi uppskrift er notuð í Súrsæt sósa
Meðlæti
Súrsæt sósa
- Hráefni
- » 1 stk. laukur
- » 1 stk. gulrót
- » 1 bolli vatn
- » 1 bolli lager edik t.d. frá Heidelberg
- » 1 bolli sykur
- » 1 msk. tómatþykkni (tomato paste)
- » kartöflumjöl
- » vatn
Aðferð
Skerið gulrót og lauk í strimla eða saxið niður. Setjið í pott ásamt vatni, ediki, sykri, tómatþykkni og sjóðið saman. Hrærið kartöflumjöl út í kalt vatn og þykkið sósuna með því að hella í mjórri bunu út í sósuna og hræra stöðugt í pottinum á meðan.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/517/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










