Heitkryddað túnfisksalat

Hráefni
» 800 g túnfiskur, nýr eða frosinn
» 1 stk. rauðlaukur
» 2 stk. lime-blöð (kaffír)
» 1 stk. rautt chilialdin
» 1/2 búnt kóríander
» 4 stönglar minta
» 20 blöð sæt tælensk basilíka
» 1 búnt vorlaukur
» 1 haus blaðkál (pak choi)
» 2 stk. stórir mangó ávextir
» 1 stk. stór agúrka
» 1 dl sæt chilisósa
» 1 stk. lime, safinn
» 1 dl sesamolía
» 1 msk. hvítlauksolía
» 1 tsk. grænmetiskraftur
» pipar

Aðferð

Skerið túnfisk í jafna litla teninga og setjið í skál. Afhýðið og fínsaxið rauðlauk, saxið lime- blöð, chili, kóríander, mintu og basilíku og setjið í skálina með túnfiskinum. Sneiðið vorlauka og blaðkál og bætið saman við. Afhýðið mangó ávöxt og agúrku, skerið í teninga og bætið í skálina. Hellið því næst chilisósu, lime safa og sesam- og hvítlauksolíu yfir. Blandið vel saman og kryddið með grænmetiskrafti og pipar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar