Piparskötuselur á mintusalati

Hráefni
» 600 g skötuselur
» 2 dl balsamedik
» 2 msk. hunang
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» 2 msk. sítrónuolía
» 4 msk. fimmpiparblanda, mulin maldon salt
» 1 búnt minta
» 1 búnt rocket salat (arugula)
» 1/4 stk. vatnsmelóna
» 2 tsk. kóríanderfræ
» 1 tsk. sinnepsfræ
» 1 msk. sítrónusafi
» 200 g gráðaostur

Aðferð

Sjóðið saman balsamedik og hunang við vægan hita í um 5 mín. eða þar til blandan er orðin mjög þykk. Kælið. Afhýðið hvítlauk og pressið út í sítrónuolíuna. Hreinsið skötuselinn, ef þess þarf, smyrjið hvítlauksolíu á hann og veltið svo upp úr piparblöndunni. Steikið skötuselinn heilan í 3–4 mín. á hvorri hlið, steikingartími fer eftir þykkt, og saltið aðeins. Blandið saman mintu og rocket salati, skerið vatnsmelónuna í litla bita. Setjið kóríander- og sinnepsfræin í sítrónusafann.

Setjið hunangs-balsamedikblönduna á diska, smá óreglulegar slettur hingað og þangað. Raðið salatblöðunum á diskana og skiptið melónunni jafnt á diskana. Skerið skötuselinn á ská í sneiðar og leggið sneiðarnar á diskana, nálægt miðju, og myljið gráðaost yfir. Stráið kóríander- og sinnepsfræjum og því sem eftir er af sítrónusafanum yfir skötuselinn. Að síðustu er gott að strá smávegis maldon saltflögum yfir.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar