Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Lúðustrimlar í vorrúlludeigi
- Hráefni
- » 500 g smálúðuflök
- » 1 stk. vorlaukur
- » 1/2 stk. blaðlaukur
- » 1 stk. rauð paprika
- » 1 stk. gulrót
- » 1 msk. sesamolía
- » 2 msk. tamari- eða sojasósa
- » 1–2 cm engiferrót
- » 12 stk. kóríanderstönglar
- » 1 stk. lime-blað
- » 1 búnt baunaspírur
- » pipar
- » 8 stk. vorrúllublöð („Spring Roll Pastry“)
- » 1 msk. hvítlauksolía
- » maldon salt
Aðferð
Roð- og beinhreinsið smálúðuflökin. þvoið blaðlauk, vorlauk, papriku og gulrót og skerið í örfína strimla. Skerið smálúðuflökin einnig í strimla. Setjið hvort tveggja í skál ásamt baunaspírum og hellið sesamolíu og tamarisósu yfir. Saxið niður engiferrót, kóríander og lime-blað og blandið saman við. Kryddið með pipar. Leggið vorrúlludeigið á vinnuborð og skiptið því sem er í skálinni á vorrúllublöðin. Rúllið upp, innihaldið má standa aðeins út fyrir, smyrjið hvítlauksolíu á rúllurnar og stráið smá maldon salti yfir. Bakið í 10 mín. við 200°C. Gott er að bera vorrúllurnar fram með salsa-sósunni.Þessi uppskrift er notuð í Salsa-sósa:
Meðlæti
Salsa-sósa:
- Hráefni
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 4 stk. tómatar
- » 2 msk. hvítlausolía
- » mintulauf
- » 2 msk. sæt chilisósa
- » nýmalaður pipar
Aðferð
Afhýðið rauðlauk og hvítlauk og saxið niður ásamt tómötum. Setjið á pönnu með hvítlauksolíu og saxið svo mintulaufin yfir. Látið krauma í um 5 mín. Bætið chilisósunni saman við og kryddið að lokum með nýmöluðum pipar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/523/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










