Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
„Tempura“ koli og grænmeti
- Hráefni
- » 600 g rauðsprettuflök
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 1 stk. blaðlaukur
- » 1 búnt vorlaukur
- » 1 stk. sæt kartafla
- » 1 pakki tempura vatn
- » 2 msk. sesamfræ
- » salt og pipar
- » djúpsteikingarolía
- » 1 búnt basilíka
Aðferð
Roð- og beinhreinsið rauðsprettuflökin og skerið í strimla. Afhýðið rauðlauk og skerið í grófa bita ásamt blaðlauk og vorlauk. Afhýðið sætu kartöfluna og skerið í þunnar sneiðar, langsum og svo til helminga. Hrærið innihald tempura pakkans út í vatni og bætið sesamfræjum saman við. þerrið rauðsprettuna og kryddið með salti og pipar. Hitið olíu til djúpsteikingar, dýfið rauðsprettunni, grænmeti og basilíku í tempura-deigið og djúpsteikið. það er skemmtilegt að bera réttinn fram á stóru fati, blanda öllu saman og hafa ídýfur með.Þessi uppskrift er notuð í Ídýfa 1 Ídýfa 2,
Meðlæti
Ídýfa 1
- Hráefni
- » 1 msk. fersk basilíka
- » 200 g sýrður rjómi
- » 1 msk. sinnep
- » 1 stk. sítróna, safinn
Aðferð
Saxið basilíku og hrærið svo öllu saman; sýrðum rjóma, sinnepi, sítrónusafa og basilíku.Ídýfa 2
- Hráefni
- » 2 msk. ferskt kóríander
- » 2 msk. fersk minta
- » 200 g sýrður rjómi
- » 2 tsk. karrímauk
Aðferð
Saxið kóríander og mintu og hrærið svo saman sýrðum rjóma, karrímauki og kryddjurtum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/526/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










