Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
„Tom yum“-núðlur með rækjum
- Hráefni
- » 16 stk. risarækjur
- » 1 pakki spínateggjanúðlur
- » 1 búnt vorlaukur
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 3 stk. tómatar
- » 2 msk. ólífuolía
- » 2 msk. „tom yum“ kryddmauk
- » salt og pipar
- » 200 ml kókosmjólk
- » 1 stk. nori-blað
- » 150 g kasjúhnetur
Aðferð
Sjóðið núðlurnar samkvæmt leið-beiningum á umbúðunum. Saxið vorlaukana. Afhýðið rauðlauk og hvítlauk og skerið laukinn smátt ásamt tómötum. Steikið lauk og tómata í olíu á pönnu. Bætið risarækjum á pönnuna ásamt „tom yum“-maukinu og pressið hvítlaukinn yfir. Kryddið með salti og pipar. Hellið kókosmjólk á pönnuna og sjóðið í um 2 mín. Blandið soðnu núðlunum saman við ásamt söxuðum vorlauk. Klippið nori-blaðið í ræmur og ristið með kasjúhnetum á þurri pönnu. Stráið þessu síðan yfir núðlurnar. þennan rétt er gott að bera fram með austurlensku rækjukexi sem hefur verið djúpsteikt í olíu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/527/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










