Laxa-canneloni

Hráefni
» 1 stk. lítið laxaflak
» 3 stk. hvítlauksgeirar
» 3 msk. ólífuolía
» 4 dl vatn
» salt
» 12 stk. ferskar lasagne-plötur
» 500 g ricotta- eða mascarponeostur
» 300 g gorgonzolaostur
» 1 poki spínat
» 1 búnt basilíka
» 1 dós „pomadori“ tómatar
» nýmalaður pipar
» múskat grænmetiskraftur

Aðferð

Skerið laxinn í 16 álíka stóra bita. Afhýðið hvítlaukinn og pressið. Búið til hvítlauksolíu með því að blanda saman pressuðum hvítlauk og ólífuolíu. Setjið vatnið með smá salti yfir til suðu og dýfið lasagne-plötunum einni í einu í sjóðandi vatnið í nokkrar sekúndur. Setjið lasagne-plöturnar á viskastykki og leggið síðan einn laxabita á hverja plötu ásamt ricotta- og gorgonzolaosti, spínati og basilíku. Saxið tómatana og skiptið magninu í tvennt, setjið helminginn á lasagne-plöturnar. Setjið síðan örlítið af hvítlauksolíunni yfir. Rífið smá múskat yfir og piprið. Rúllið lasagne-plötunum upp á lengdina.

Smyrjið eldfast mót með hvítlauksolíu og raðið canneloni-rúllunum í mótið. Setjið restina af tómötunum yfir og ef afgangur er af olíunni er gott að dreifa henni yfir. Stráið að lokum grænmetiskrafti yfir og bakið í ofni við 150°C í 15 mín.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar