Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Risarækjur í chili-basilíkumauki
- Hráefni
- » 24 stk. stórar risarækjur
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 2 stk. vorlaukar
- » 2–3 msk. olía
- » 2 msk. chili-basilíkumauk
- » 2 dl sýrður rjómi
- » 1 pakki baunaspírur
- » salt og pipar
- » 1/4 haus jöklasalat
- » 20 stk. tælensk basilíkublöð
Aðferð
Skelflettið rækjurnar. Afhýðið hvítlauk og rauðlauk og skerið rauðlaukinn í ræmur ásamt vorlaukum. Pressið hvítlauk og steikið rækjur og hvítlauk í olíu á pönnu. Bætið chili-basilíkumauki og rauðlauk á pönnuna. Saltið og piprið og bætið sýrða rjómanum saman við. Takið pönnuna af hitanum og bætið vorlauk og baunaspírum saman við. Blandið vel saman. Saxið jöklasalatið og setjið í botn á glasi, setjið risarækjurnar þar ofaná og stráið svo söxuðum basilíkublöðum yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/529/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










