Saltfiskbollur með spænsku grænmetis-„duxelli“

Hráefni
» 250 g soðinn saltfiskur
» 130 g soðnar kartöflur
» 3 stk. hvítlauksgeirar
» 2 msk. jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
» 11/2 dl rjómabland (rjómi og mjólk til helminga)
» 1 msk. hveiti
» 1 msk. smjör
» 1–2 msk. steinselja
» salt og svartur pipar
» 3 msk. hveiti
» 1 stk. egg
» 1 dl brauðrasp

Aðferð

Afhýðið skalottlauk og hvítlauk og skerið í bita. Fræhreinsið papriku og skerið í bita ásamt gulrót og selleríi. Steikið grænmeti og rósmarín upp úr ólífuolíu, í potti, við vægan hita, þar til grænmetið er orðið mjúkt. Bætið tómötum, víni, ediki og sykri saman við. Sjóðið við vægan hita í um 10 mín. eða þar til allt er orðið samansoð ið og mjúkt. Setjið í matvinnsluvél og hakkið gróft. Látið aftur í pottinn og bragðið til með salti og pipar. Stráið að lokum raspi yfir til þess að þykkja maukið. Látið maukið á disk og nokkrar bollur í kring. Snúið salatinu upp úr ólífuolíunni og látið í miðjan diskinn.

Þessi uppskrift er notuð í Spænskt grænmetis-„duxelles“

Meðlæti

Spænskt grænmetis-„duxelles“

Hráefni
» 1–2 stk. skalottlaukar
» 3–5 stk. hvítlauksgeirar
» 1/2 stk. græn paprika
» 1/2–1 stk. gulrót
» 1/2 stilkur sellerí
» lítið búnt rósmarín
» 2 msk. ólífuolía
» 1 dl niðursoðnir tómatar
» 1/2 dl rauðvín eða hvítvín
» 2 msk. sjerrí-edik
» 1 tsk. sykur
» salt og svartur pipar
» 2 msk. brauðrasp
» Salat:
» stökkt blandað salat
» jómfrúarolía (Exstra virgin ólífuolía frá Monte Vibiano)

Aðferð


Afhýðið og hakkið hvítlauk fínt og mýkið í ólífuolíu á pönnu. Hellið rjómablandinu yfir. Hnoðið saman smjöri og hveiti í smjörbollu. Látið saman við það sem er á pönnunni og hitið við vægan hita, þar til sósan þykknar. Kælið. Fín saxið steinseljuna. Maukið kartöflurnar fínt og myljið soðna saltfiskinn út í. Hellið sósunni saman við. Setjið þetta í hrærivél ásamt steinselju, svörtum pipar úr kvörn og salti ef þarf. Hrærið öllu vel saman. Mótið nettar fallegar bollur af jafnri stærð. Veltið bollunum upp úr hveiti, síðan sundurslegnu eggi og svo raspi. Athugið að bollurnar má frysta á þessu stigi. Djúpsteikið bollurnar í góðri olíu þar til stökk gullinbrún skorpa myndast.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar