Heitreykt bleikja með graslaukssósu

Hráefni
» 4 stk. bleikjuflök
» grófkorna sjávarsalt
» hvítur pipar úr kvörn
» 4 msk. grófkorna dijon sinnep
» 1 lítið búnt graslaukur
» 2 lúkur „hickory“ reyksag

Aðferð

Við heitreykingu er hægt að nota nokkrar aðferðir. Ein væri að setja bleikjuna á grind á litlu viðarkolagrilli, sem má vera gamalt og úrsérgengið, og reykja í því. þá er saginu dreift um grillið, undir það sem á að reykja og kveikt í. þegar farið er að rjúka vel úr saginu er lok sett yfir bleikjuna, eða álpappír. þannig reykist bleikjan við um 50°C gráður. þetta tekur um 20 mín. en tíminn fer annars eftir því hvers konar áhald er notað við reykinguna.

Önnur aðferð er að nota gamalt stálfat og grind og breiða álpappír yfir. Einnig er í lagi að nota gamlan pott eða pönnu og setja þá net eða grind yfir. Athugið að ílátið verður varla til annarar notkunar í framtíðinni. þetta er ekta sumarbústaðarmatreiðsla. Roð- og beinhreinsið bleikjuflökin. Skerið flökin í tvennt, saltið létt og piprið. Smyrjið sinnepi yfir. Saxið niður graslauk og stráið honum yfir bleikjuna. Látið standa í um 1 klst. Reykið bleikjuna eins og lýst er hér að ofan. Kælið bleikjuflökin þegar þau eru hæfilega reyksoðin. Berið fram með stökku salati sem hefur verið snúið upp úr ólífuolíu og smáslettu af góðu balsamediki og örlitlu salti.

Þessi uppskrift er notuð í Graslaukssósa

Meðlæti

Graslaukssósa

Hráefni
» 1 búnt graslaukur
» sítrónusafi
» sykur eða hlynsíróp
» 1 msk. dijon sinnep
» 1 box sýrður rjómi, 18 eða 36%

Aðferð

Setjið allt sem á að fara í graslaukssósuna í matvinnsluvél og blandið vel saman. Berið ferska sósuna fram með nýreyktri bleikjunni.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar