Hvítvíns-kryddjurta rjómasósa

Hráefni
» 1 dl hvítvín
» 1 dl kjúklinga-, fiski-eða humarsoð
» 1 dl rjómi
» Blandaðar ferskar kryddjurtir t.d.: steinselja, basilíka, graslaukur og estragon
» salt og hvítur pipar úr kvörn

Aðferð

Sjóðið saman hvítvín, soð og rjóma þar til það hefur þykknað og er orðið bragð.étt. Saltið og piprið eftir smekk. Hakkið kryddjurtirnar fínt. Snúið ravíólí-koddunum upp úr þessu og stráið blönduðum kryddjurtum út í sósuna og yfir hana rétt áður en rétturinn er borinn fram. Berið ravíólí-koddana fram með humarhölunum og steiktum vorlauk.

Þessi uppskrift er notuð í Humar og vorlaukur með humarfylltu ravíóli Pastaplötur, Humarfyllt ravíólí,

Meðlæti

Humar og vorlaukur með humarfylltu ravíóli

Hráefni
» 18 stk. humarhalar, skelflettir
» 6–12 stk. vorlaukar
» 2–3 msk. smjör
» salt og pipar

Aðferð

Skerið vorlaukana skáhallt í bita. Steikið humar og vorlauka upp úr smjöri á pönnu. Saltið og piprið eftir smekk.

Pastaplötur

Hráefni
» 200 g hveiti
» 2 stk. egg
» 1 tsk. ólífuolía
» 1/2 tsk. fínt salt

Aðferð

Hnoðið hveiti, egg, ólífuolíu og salt vel saman. Pakkið deiginu inn í plastfilmu og látið standa í 1 klst. Fletjið deigið út í lengjur, eins þunnt og mögulegt er, annaðhvort með kefli eða í sérstakri pastavél.

Humarfyllt ravíólí

Hráefni
» Ferskar pastaplötur
» 200 g humar, skelflettur
» 2 stk. vorlaukar
» salt og hvítur pipar
» 1/2 stk. sítróna
» vatn til penslunar

Aðferð

Skerið humarinn í litla bita. Hér er upplagt að nota óflokkaðan humar. Skerið vorlaukana smátt og létt steikið upp úr smjöri. Blandið saman við humarinn. Saltið og piprið og kreistið smá sítrónusafa yfir.

Leggið pastalengjurnar á hveitistráð borð. Setjið eina teskeið af humarmauki með um 4 cm millibili á eina lengju. Penslið kantana með vatni og leggið aðra pastalengju ofan á. þrýstið með fingrunum á kantana, þannig að litlir koddar myndist. Hafið um 11/2 cm kant á hverjum kodda. Skerið á milli með kleinujárni, hníf eða hringlaga formi, allt eftir því hvernig útlit þið kjósið. þrýstið enn og aftur á kantana í þetta sinn með gaffli til þess að kantarnir límist alveg saman. Setjið koddana í sjóðandi léttsaltað vatn. Sjóðið í um 4 mín. í stórum potti. Setjið í sigti og skolið örstutt undir kaldri vatnsbunu. Setjið að lokum smá slettu af ólífuolíu yfir.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar