Kreólakryddaðar risarækjur með sesarsalat

Hráefni
» 16 stk. stórar risa-rækjur
» kreóla-kryddblanda
» salt 2–3 msk.
» ólífuolía

Aðferð

Veltið rækjunum upp úr kreólakryddblöndu og saltið. Steikið í ólífuolíu á pönnu.

Þessi uppskrift er notuð í Sesarsalat með kreólakrydduðum risarækjum

Meðlæti

Sesarsalat með kreólakrydduðum risarækjum

Hráefni
» Salat:
» 1 búnt romaine salat
» 4 msk. parmesanostur
» 1 dl stökksteiktir brauðteningar (croutons)
» Dressing:
» 2 msk. majónes
» 2 msk. sýrður rjómi
» 1 msk. dijon sinnep
» 1–2 stk. hvítlauksgeirar
» 1–2 stk. krydduð ansjósuflök (má sleppa)
» 1 stk. sítróna, safinn
» salt og hvítur pipar

Aðferð

Afhýðið og hakkið hvítlaukinn fínt. Hrærið vel saman majónesi, sýrðum rjóma, dijon sinnepi og hvítlauk. Ef þið notið ansjósuflök, sem gefa mjög fínt og „ekta“ bragð í sesarsalatið, maukið þau þá með gaffli og blandið saman við. Kreistið sítrónusafann yfir og saltið og piprið eftir smekk. Athugið að þessi dressing má vera kröftug í bragði því hún á eftir að blandast salatinu.

Skolið og sneiðið salatið fínt. Hellið dressingunni yfir salatið og blandið vel saman. Skiptið salatinu á 4 stóra diska. Stráið stökkum brauðteningunum yfir diskana og rífið parmesanost yfir. Raðið fjórum steiktum rækjum á hvern disk.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar