Sítrónu- og piparmarineraðar laxasneiðar

Hráefni
» 400 g laxaflök
» 1–2 stk. sítrónur
» blandaður hvítur og svartur pipar
» 4–6 stk. tómatar, vel þroskaðir
» 2–4 stk. vorlaukar
» 1 búnt rúkóla salat
» 4 msk. jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte V.)
» gróft sjávarsalt af fínustu gerð

Aðferð

Beinhreinsið laxaflökin og skerið í þunnar sneiðar, eins skáhallt og mögulegt er, frá sporði. Leggið sneiðarnar á fat. Kreistið safa úr sítrónunum. Veltið sneiðunum jafnt upp úr sítrónusafa. Stráið blönduðum grófkorna pipar yfir. Látið standa í 30 mín.

Hitið grillið í ofninum eða stillið ofninn á hæsta hita.

Raðið laxasneiðunum í ofnskúffu. Setjið inn í ofn í 2–4 mín. eða þar til laxinn hefur „snöggbakast“. Athugið að það er áríðandi að fara ekki frá ofninum heldur fylgjast með laxinum allan tímann.

Skerið tómata í tvennt, fjarlægið kjarna og skerið í strimla. Hreinsið vorlauka og sneiðið þunnt niður. Hreinsið rúkóla salatið og þerrið vel. Skiptið salatinu jafnt á fjóra diska. Látið laxasneiðarnar þar ofan á. Stráið tómatstrimlum og sneiddum vorlauk yfir. Slettið ólífuolíu jafnt yfir diskana og stráið salti yfir. þetta er fljótlegur og bragðgóður laxasmáréttur eða forréttur. Hentar einnig sem hluti af hlað-borði. Berið nýbakað brauð fram með.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar