Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Eggjakaka með saltfisk og skalottlauk
- Hráefni
- » 3 stk. egg
- » sporður af soðnum eða steiktum saltfiski
- » 1–2 stk. skalottlaukar
- » 1–2 msk. ólífuolía
- » 1 lítð búnt rúkóla salat
- » „trufflu“-ilmuð ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano
- » sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
Aðferð
Sláið út egg og þeytið vel. Myljið soðinn eða steiktan saltfisk í bita. Afhýðið og hakkið skalottlauka og steikið í olíu á pönnu við vægan hita, þar til þeir verða mjúkir og gullinbrúnir. Takið laukinn af pönnunni og setjið saman við saltfiskinn. Bætið smá olíu til viðbótar á pönnuna sem laukurinn var steiktur á og aukið hitann. Hellið eggjahrærunni á pönnuna. Hristið pönnuna aðeins fram og aftur án þess að eggin slitni í sundur. þegar eggin hafa bakast aðeins við jaðrana, látið þá saltfisk með lauk ofan á. Farið með skörpum en samt mjúkum spaða meðfram köntunum og brettið upp á eggin og fyllinguna í áttina frá ykkur. Rúllið eggjunum svona saman utan um fyllinguna, eins og hægt er, þannig að eggjakakan snúist og óeldað i hlutinn sé alltaf við botninn. þegar eggjakökurúllan er bökuð á öllum hliðum, en samt mjúk innan í þá er hún tilbúin. Hvolfið eggjakökunni á disk. Látið smá rúkóla salat á diskinn og hellið yfir það og eggin dreitli af Monte Vibiano „trufflu“-olíu. Saltið með góðu fyrsta flokks sjávarsalti og stráið nýmöluðum hvítum pipar yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/543/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










