Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Pidy sjávarréttabaka
- Hráefni
- » 4 stk. tilbúnar bökur frá Pidy
- » 4 stk. egg
- » 2 dl rjómi
- » 50 g sveppir
- » 50 g paprika
- » 100 g rækjur
- » 100 g hörpudiskur
- » 1 tsk. paprikuduft
- » salt og pipar
Aðferð
Bökurnar er hægt að kaupa í ýmsum stærðum og þessi uppskrift miðast við bökur sem taka um 100 g. Hrærið saman eggjum og rjóma. Saxið niður sveppi og papriku og blandið saman við rækjurnar. Snyrtið hörpudiskinn með því að taka skeggið af, skerið síðan í tvennt og blandið saman við sveppi, papriku og rækjur. Skiptið þessu á bökurnar. Kryddið eggja-rjómablönduna með paprikudufti, salti og pipar og hellið yfir bökurnar. Bakið við 180°C í 15 mín.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/545/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira









