Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Pizza með humarhölum og parmaskinku
- Hráefni
- » 4 stk. naan brauð
- » 200 g humarhalar, skelflettir
- » 150 g parmaskinka
- » 50 g rifinn ostur
- » 100 g parmesanostur
- » svartur pipar
- » ólífuolía
Aðferð
Skiptið humarhölum og parmaskinku jafnt á naan brauðin. Dreifið rifnum osti yfir og bakið í ofni við 220°C í 5 mín. Rífið parmesanost og stráið yfir ásamt svörtum pipar og ólífuolíu, um leið og þið takið pizzurnar úr ofninum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/548/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










