Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Sjávarrétta-„quiche“
- Hráefni
- » Bökuform, 13 cm
- » 50 g laxaflak
- » 50 g steinbítsflak
- » 50 g humarhalar
- » 50 g rækjur
- » salt og pipar
- » 1/2 stk. rauðlaukur
- » 1/2 stk. rauð paprika
- » 1 stk. egg
- » 3 stk. eggjarauður
- » 21/2 dl rjómi
Aðferð
Roð- og beinhreinsið lax- og steinbítsflök, skerið í litla bita og kryddið með salti og pipar. Afhýðið rauðlauk og skerið smátt ásamt papriku. Hrærið egg, eggjarauður og rjóma saman og kryddið blönduna með salti og pipar. Setjið lax, steinbít, humarhala, rækjur, rauðlauk og papriku í smurt bökuform („Quiche“-form). Hellið eggjablöndunni yfir og bakið í um 15 mín. við 160°C.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/550/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









