Hagkaup
|
mbl
|
13. júní
Túnfiskur á „polentu“ með ansjósumauki
- Hráefni
- » 600 g túnfisksteikur (fást frosnar)
- » olía til steikingar
- » salt og pipar
Aðferð
Steikið túnfisksteikurnar í olíu á pönnu í nokkrar mín. og kryddið með salti og pipar. Raðið polentu-bitunum á bakka. Skerið túnfiskinn í hæfilegar sneiðar, setjið ofan á polentuna og smá ansjósumauk á toppinn. Skreytið með kóríanderblöðum.Þessi uppskrift er notuð í Ansjósumauk Polenta,
Meðlæti
Ansjósumauk
- Hráefni
- » 75 g ansjósur
- » 4 stk. egg
- » 3 msk. smjör
- » 1 msk. ferskt kóríander
- » 3 dl mjólk
- » salt og pipar
Aðferð
Harðsjóðið egg, kælið þau og takið rauðurnar úr. Hvítan er ekki notuð í uppskriftinni. Leggið ansjósurnar í mjólk í um 30 mín. til þess að losna við hluta saltsins. Hafið smjörið við stofuhita og saxið ferskan kóríander. Takið ansjósurnar úr mjólkinni, þerrið, setjið í matvinnsluvél og maukið vel. Bætið eggjarauðum út í, síðan smjöri og að lokum kryddjurtum. Kryddið með salti og pipar.Polenta
- Hráefni
- » 7,5 dl kjúklingasoð
- » 250 g polentamjöl
- » 100 g parmesanostur
- » 100 g smjör
- » 100 g sýrður rjómi
- » salt og pipar
Aðferð
Hitið kjúklingasoðið. Bætið polentamjöli út í og hrærið vel í um eina mín. Takið þá pottinn af hitanum og bætið smjöri, parmesanosti og sýrðum rjóma út í. Kryddið með salti og pipar. Klæðið bökunarplötu með smjörpappír og hellið innihaldi pottsins á plötuna. Fletjið út í um 2 cm þykkt. Skerið polentuna í hæfilega stóra bita fyrir það sem á að nota hana í og steikið á báðum hliðum í smjöri á pönnu, þar til hún er gullinbrún.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/552/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira









