Kúfiskpasta

Hráefni
» 400 g kúfiskur úr dós
» 400 g soðið pasta
» 1 dl kúfisksoð
» 1 dl fiskisoð
» 1 dl rjómi
» 20 g paprika
» 20 g blaðlaukur
» 20 g sveppir
» sósujafnari eða smjörbolla
» 60 g gráðaostur
» salt og pipar

Aðferð

Byrjið á að sjóða pasta samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum. Skerið niður papriku, blaðlauk og sveppi. Setjið kúfisksoð, fiskisoð, rjóma, salt og pipar, grænmeti og gráðaost í pott og sjóðið í 5 mín. þykkið með smjörbollu, sjá leiðbeiningar á bls. 24, eða sósujafnara. Bætið kúfiski út í sósuna og blandið henni síðan saman við soðið pasta.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar