Hagkaup
|
mbl
|
20. júní
Humarhalar með hvítlauk og sítrónu
- Hráefni
- » 40 stk. stórir humarhalar
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 stk. sítrónur, safinn
- » 1/2 búnt steinselja
- » 50 g smjör
- » 2–3 msk. ólífuolía
- » salt
- » brauðrasp
Aðferð
Afhýðið hvítlauksgeirana og saxið. Kreistið safa úr sítrónum og saxið steinselju. Kljúfið og garnhreinsið humarhalana og steikið síðan í smjöri og olíu á pönnu í 1/2 mín. á hvorri hlið. Stráið salti yfir og hrærið hvítlauknum saman við. þegar öllu hefur verið blandað vel saman er sítrónusafanum bætt saman við og síðan er brauðraspi og steinselju sáldrað yfir. Berið humarhalana fram með bræddu smjöri, ristuðu brauði og sítrónum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/559/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









