Kræklingur í hvítvínssmjörsósu

Hráefni
» 24 stk. stór kræklingur
» 20 g laukur
» 20 g gulrót
» 20 g paprika
» 20 g blaðlaukur
» 1/2 dl fiskisoð
» 1 dl hvítvín
» 1 dl rjómi
» salt
» 100 g smjör við stofuhita
» 2 bollar soðin hrísgrjón
» steinselja

Aðferð

Afhýðið lauk og skerið í strimla ásamt gulrót, papriku og blaðlauk. Athugið að þið getið notað annað grænmeti, t.d. það sem þið eigið í ísskápnum. Sjóðið kræklinginn í saltvatni þangað til hann opnast. Takið fiskinn þá úr skeljunum og fjarlægið sinar og skegg. Hreinsið skeljarnar og grófsaxið fiskinn.

Steikið grænmetið í olíu á pönnu, án þess að brúna það. Bætið fiskinum saman við og steikið aðeins áður en þið bætið fiskisoði og hvítvíni á pönnuna. Sjóðið aðeins niður og bætið síðan rjóma á pönnuna og sjóðið við hægan hita þar til rjóminn þykknar. Saltið og takið pönnuna af hitanum. Blandið mjúku smjöri saman við. Raðið skeljunum ofan á heit hrísgrjón og berið réttinn fram í skeljunum. Saxið steinselju og stráið henni yfir

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar