Hagkaup
|
mbl
|
20. júní
Gufusoðinn kræklingur
- Hráefni
- » 50 stk. kræklingar
- » 1/2 stk. laukur
- » 1/4 stk. blaðlaukur, ljósi hlutinn
- » 2–3 msk. ólífuolía
- » 1 dl fiskisoð
- » 2 dl hvítvín
- » 100 g smjör
- » salt
Aðferð
Hreinsið kræklinginn. Afhýðið lauk og saxið. Skerið blaðlauk í strimla. Snöggsteikið lauk og blaðlauk í olíu í potti. Hellið fiskisoði og hvítvíni saman við. Setjið kræklinginn út í pottinn. Stráið örlitlu salti yfir og setjið þétt lok á pottinn. Kræklingurinn er soðinn þegar skeljarnar opnast.Færið kræklinginn upp úr pottinum og skiptið á fjóra súpudiska. Sigtið soðið, jafnið með smjörinu og saltið ef með þarf. Skiptið sósunni jafnt á diskana og berið kræklinginn fram með salati og ristuðu brauði eða hvítlauksbrauði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/561/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










