Kryddleginn risahörpudiskur

Hráefni
» 24 stk. risahörpudiskur
» 1 stk. lime
» 2 dl kryddolía af fetaosti
» 1 tsk. karrímauk, milt
» maldon salt
» pipar
» 2 msk. rósapipar
» 1/2 búnt dill
» 1 stk. blaðkál (pak choi)
» 1 stk. blaðlaukur
» 1 stk. gul paprika
» 2 msk. ólífuolía
» 2 msk. sesamolía
» 1 msk. sesamfræ

Aðferð

Rífið börkinn af lime og kreistið safann. Leggið hörpudisk í kryddolíu af fetaosti. Bætið karrímauki saman við, ásamt lime-berki og -safa, salti og pipar. Myljið rósapiparinn gróft og hrærið saman við. Saxið dill og stráið yfir. Látið liggja í kæli í nokkrar klst. Hreinsið og skerið niður blaðkál, blað-lauk og papriku og létt steikið í olíu á pönnu. Setjið á disk. Ristið hörpudisk í sesamolíu á vel heitri pönnu, t.d. grillpönnu, örstutta stund á báðum hliðum. Leggið hörpudiskinn yfir grænmetið og stráið sesamfræjum yfir. Hellið því sem eftir var af kryddolíu yfir.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar