Hagkaup
|
mbl
|
28. júní
Soðinn kræklingur
- Hráefni
- » 4 kg kræklingur
- » 1 stk. stór laukur
- » 1 stk. blaðlaukur
- » 2 stk. gulrætur
- » 4 dl hvítvín eða vatn
- » 2 msk. súpujurtir
- » 2 msk. grænmetskraftur
- » 1 búnt vorlaukur
- » 1 búnt ítölsk steinselja
- » 1/2 búnt fáfnisgras (estragon)
- » 2 msk. kóríanderfræ
- » 1 dl Pernod vín (má sleppa)
Aðferð
Hreinsið kræklinginn. Setjið kræklinginn í rúmgóðan pott. Afhýðið lauk og skerið smátt ásamt blaðlauk og gulrótum. Setjið grænmetið í pottinn með kræklingnum. Hellið hvítvíni eða vatni í pottinn og setjið yfir til suðu. Bætið súpujurtum og grænmetiskrafti saman við. Setjið lok á pottinn og látið suðuna koma upp.Saxið vorlauk, steinselju og fáfnisgras og bætið út í pottinn ásamt kórínaderfræjum. Hellið Pernod í pottinn, setjið lokið aftur á og sjóðið í um 1 mín. eða þangað til skeljarnar hafa opnast. Gott er að bera kræklinginn fram með brauði og nota balsamedik sem ídýfu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/564/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










