Hagkaup
|
mbl
|
28. júní
Humarsalat
- Hráefni
- » 16 stk. humarhalar
- » 4 msk. basilíkuolía
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 1 msk. grænmetiskraftur
- » 2 stk. ciabatta brauð
- » 1 búnt rauð basilíka
- » 1 krukka niðurlögð þistilhjörtu
- » 100 g furuhnetur
- » 2 msk. hvítt balsamedik
- » nýmalaður pipar
- » 100 g parmesanostur
Aðferð
Skelflettið humarinn og steikið á pönnu í 2 msk. af basilíkuolíunni. Pressið hvítlauk og setjið yfir humarinn. Stráið grænmetiskrafti yfir. Takið humarinn af pönnunni og kælið. Skerið ciabatta brauðin í tvennt og ristið á pönnu. Saxið helminginn af basilíkunni og stráið yfir humarinn. Sigtið olíuna af þistilhjörtunum og geymið en blandið þistilhjörtunum varlega saman við humarinn.Ristið furuhnetur á þurri pönnu. Hellið balsamediki saman við olíuna af þistilhjörtunum og hellið yfir humarinn. Setjið brauðbotnana á disk og humarsalatið þar ofan á. Kryddið með nýmöluðum pipar og stráið furuhnetum yfir. Sneiðið parmesanost í þunnar sneiðar og stingið þeim á víð og dreif, óreglulega, í salatið ásamt basilíkublöðunum sem eftir voru. Látið basilíkuolíu í dropatali yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/565/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










