Humarragú

Hráefni
» 20 stk. humarhalar
» 3 stk. hvítlauksgeirar
» 50 g smjör
» 50 g hveiti
» 3 dl rjómi
» 2 msk. koníak (má sleppa)
» 1 tsk. túrmerik
» 1/2 tsk. saffran
» 1 tsk. grænmetiskraftur frá Hugli
» salt og pipar
» 1 búnt dill
» tartalettur eða smjördeigsskeljar (ef vill)

Aðferð

Afhýðið hvítlauksgeirana og saxið smátt. Skelflettið humarhalana og steikið stutta stund í smjöri á pönnu með hvítlauk. Takið humarinn af pönnunni, hann á ekki að vera gegnum steiktur, og leggið til hliðar. Setjið hveiti á pönnuna og búið til smjörbollu með því að hræra hveitinu saman við smjörið á pönnunni. Hellið rjóma og koníaki á pönnuna og hrærið vel í þar til suðan kemur upp. Bætið túrmerik og saffrani saman við ásamt grænmetiskrafti. Kryddið með pipar og sjóðið stutta stund. Setjið humarinn út í sósuna, saltið ef með þarf, og saxið dillið yfir. Gott er bera ragúið fram í tartalettum eða smjördeigsskeljum sem eru hitaðar í ofni og síðan fylltar með ragúinu.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar