Blandaður skelfiskur

Hráefni
» 1 kg kræklingur
» 12 stk. risarækjur
» 12 stk. risahörpudiskur
» 130 g niðursoðinn kúfiskur
» 250 g svört hrísgrjón
» 1 stk. rauðlaukur
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 1 stk. rauð paprika
» 1 stk. blaðlaukur
» 1 stk. fenníka
» 1 cm engiferrót
» 2–3 msk. olía
» 1/2 búnt kóríander
» 1 msk. grænmetiskraftur
» salt og pipar

Aðferð

Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leið-beiningum á umbúðunum og kælið síðan. Afhýðið rauðlauk og hvítlauk. Skerið rauðlauk, papriku, blaðlauk og fenníku gróft. Pressið hvítlauk og rífið engiferrótina. Setjið saman við grænmetið og leggið til hliðar. Sjóðið kræklinginn í vatni þar til skeljarnar opnast. Sjá leiðbeiningar um hreinsun á kræklingi á bls. 172. Steikið rækjur, hörpudisk og grænmeti upp úr olíu á wok pönnu og saxið kóríander yfir. Bætið hrísgrjónum á pönnuna og blandið öllu saman. Kryddið með grænmetiskrafti, salti og pipar. Hellið vatninu af kræklingnum og blandið honum saman við það sem er á pönnunni. Setjið kúskeljar á pönnuna og látið allt ná hita.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar