Hagkaup
|
mbl
|
28. júní
Hvítvínsdampaður kræklingur með fenníku, lauk og dilli
- Hráefni
- » 900 g kræklingur
- » 1/2 stk. fenníka
- » 2 stk. skalottlaukar
- » 3–5 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 msk. smjör
- » 1 dl hvítvín
- » 1 búnt dill
- » 1 dl rjómi
Aðferð
Hreinsið kræklinginn. Skerið fenníku í litla teninga. Afhýðið skalottlauk og hvítlauk og saxið smátt. Bræðið smjörið í víðum stórum potti. Látið fenníku og lauk út í pottinn og létt steikið við miðlungshita. Hækkið hitann og látið kræklinginn út í pottinn. Hrærið kræklingnum snöggt saman við fenníkuna og laukinn. Hellið hvítvíni og rjóma út í og grófrífið dillið yfir. Setjið lok á pottinn og látið kræklinginn dampast undir loki í um 4–5 mín. eða þar til allar skeljarnar hafa opnað sig. Skiptið skeljunum og súpunni jafnt á fjóra djúpa diska.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/569/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










