Íslensk grænmetissalsa

Hráefni
» 6 stk. íslenskir tómatar, vel þroskaðir
» 1/2 stk. íslensk agúrka
» 1/3 stk. blaðlaukur
» 1 stöngull sellerí
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 1 stk. rauðlaukur
» 1 búnt kóríander
» 1 stk. sítróna, safinn
» 1/2 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
» 1 msk. hlynsíróp
» gróft sjávarsalt og pipar úr kvörn

Aðferð

Fjarlægið kjarnana úr tómötunum og skerið þá í teninga. Skafið burt og fjarlægið kjarnana úr agúrkunni með teskeið og skerið hana í teninga. Kljúfið blaðlaukinn og hreinsið burt allan sand sem kann að vera á milli laga. Skerið blaðlaukinn í fína teninga. Skerið sellerístöngulinn í teninga. Afhýðið og saxið hvítlauksgeira. Afhýðið rauðlauk og saxið smátt. Hakkið kóríanderlaufin og kreistið safann úr sítrónunni. Blandið öllu saman ásamt ólífuolíu og hlynsírópi. Saltið og piprið eftir smekk.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar