Hagkaup
|
mbl
|
28. júní
Humarveisla
- Hráefni
- » 1 kg humarhalar
- » 1 stk. sítróna, safinn
- » 1 búnt steinselja
- » 3–5 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 tsk. dijon sinnep
- » 120 g smjör
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
Aðferð
Kljúfið humarhalana langsum og fjarlægið görnina sem liggur eftir miðjum halanum, undir rennandi vatni. þerrið humarhalana og raðið í ofnskúffu. Kreistið safann úr sítrónunni og saxið steinseljuna. Afhýðið hvítlauk og látið hann ásamt steinselju, sítrónusafa, dijon sinnepi og mjúku smjöri í matvinnsluvél. Látið vélina ganga þar til allt er vel blandað. Saltið og piprið eftir smekk. Smyrjið hvítlaukssmjörinu á humarhalana. Bakið við hæsta hita eða setjið undir grill í 7–10 mín., eða þar til að smjörið er vel bráðið og farið að krauma og humarinn eldaður. Berið grillaða humarinn fram í „haug“ ofan á rúkólasalati og látið íslenska grænmetissölsu, sem uppskrift er af hér fyrir neðan, jafnt yfir. þetta er tilvalinn partímatur.Þessi uppskrift er notuð í Íslensk grænmetissalsa
Meðlæti
Íslensk grænmetissalsa
- Hráefni
- » 6 stk. íslenskir tómatar, vel þroskaðir
- » 1/2 stk. íslensk agúrka
- » 1/3 stk. blaðlaukur
- » 1 stöngull sellerí
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 1 búnt kóríander
- » 1 stk. sítróna, safinn
- » 1/2 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
- » 1 msk. hlynsíróp
- » gróft sjávarsalt og pipar úr kvörn
Aðferð
Fjarlægið kjarnana úr tómötunum og skerið þá í teninga. Skafið burt og fjarlægið kjarnana úr agúrkunni með teskeið og skerið hana í teninga. Kljúfið blaðlaukinn og hreinsið burt allan sand sem kann að vera á milli laga. Skerið blaðlaukinn í fína teninga. Skerið sellerístöngulinn í teninga. Afhýðið og saxið hvítlauksgeira. Afhýðið rauðlauk og saxið smátt. Hakkið kóríanderlaufin og kreistið safann úr sítrónunni. Blandið öllu saman ásamt ólífuolíu og hlynsírópi. Saltið og piprið eftir smekk.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/571/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










