Humarveisla með Kanadahumar

Hráefni
» 1 stk. heill Kanadahumar (fæst frosinn)
» 120 g skelflettir humarhalar
» 1/3 stk. sellerístöngull
» 2 stk. 2 cm þykkar sneiðar agúrka
» 1 stk. vorlaukur
» 2 msk. majónes
» 2 msk. sýrður rjómi
» 1/4 stk. sítróna, safinn
» 1 tsk. dijon sinnep

Aðferð

Sjóðið humarinn í léttsöltu vatni og kælið. Skerið sellerístöngulinn í litla teninga. Skerið burt frækjarnann úr agúrkunni og skerið hana í litla bita. Skerið vorlaukinn í þunnar sneiðar. Hrærið saman majónesi og sýrðum rjóma ásamt sítrónusafa og sinnepi. Blandið öllu saman. Bætið soðna humrinum saman við.

Kljúfið kanadíska stórhumarinn langsum. Fjarlægið allt innan úr skelinni við hausinn og magann, þannig að lítil skál myndist. Hreinsið vel. Látið humarsalatið ofan í stórhumarinn. Berið fram sem kaldan forrétt fyrir tvo eða hafið sem hluta af hlað-borði. Athugið að þennan rétt má gera með góðum fyrirvara.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar