Blandaður skelfiskur í mangó-kókossoði

Hráefni
» 80 g humarhalar, skelflettir
» 100 g kræklingur
» 80 g risarækja
» 50 g hörpudiskur
» 2 cm engiferrót
» 4–8 stk. hvítlauksgeirar
» 1/2–1 stk. chilialdin
» 1 stk. mangó ávöxtur
» 1 dl kjúklinga- eða fiskisoð
» 3 dl kókosmjólk úr dós
» 3 msk. tælensk fiskisósa (nam pla)
» 1 búnt sítrónugras (lemon grass)
» lítið búnt kóríander
» salt og pipar
» 1/2 haus jöklasalat

Aðferð

Afhýðið hvítlauk og engifer og saxið fínt. Fræhreinsið chili og skerið í þunnar sneiðar. Afhýðið mangó, skerið aldinkjötið utan af steininum og skerið í bita. Látið kjúklinga- eða fiskisoð og kókosmjólk saman í pott ásamt fiskisósu, engifer, hvítlauk, chili og sítrónugrasi, brjótið stönglana fyrst saman, í þrennt. Sjóðið saman við vægan hita þar til soðið er orðið þétt í bragði og áferð. Hakkið kóríander fínt. Bætið fiskinum út í ásamt mangó og fínt hökkuðum kóríanderlaufum. Saltið og piprið eftir smekk. Haldið við suðumark í um 10 mín. með því að hafa pottin á vægum hita. Sneiðið jöklasalatið fínt og skiptið jafn á fjóra djúpa diska. Setjið skelfiskinn og soðið jafnt yfir. Berið fram með jasmín hrísgrjónum

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar