Risahörpudiskur á engifer-hollandaisesósu

Hráefni
» 760 g risahörpudiskur

Aðferð

Snyrtið risahörpudiskinn með því að taka skeggið sem er á hliðinni af. Grillið hörpudiskinn á vel heitri grillpönnu, þannig fást á hana fallegar grillrákir. Grillið í um 1/2 mín. á hvorri hlið. Gott er að bera hörpudiskinn og sósuna fram með strengjabaunum og hrísgrjónum.

Þessi uppskrift er notuð í Hollandaisesósa

Meðlæti

Hollandaisesósa

Hráefni
» 1 stk. sítróna, safinn
» 50g sultaður engifer
» 3 stk. eggjarauður
» 300 g smjör
» salt og pipar

Aðferð

Kreistið safann úr sítrónunni. Saxið sultaðan engifer fínt og stíf þeytið eggjarauðurnar yfir vatnsbaði, þ.e. sjóðið vatn í potti og þeytið eggjarauðurnar í skál þar yfir. Bræðið smjörið og blandið því varlega saman við eggjarauðurnar. Setjið engifer út í og smakkið til með sítrónusafa, salti og pipar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar