Hvítlauksristaðir humarhalar með rúkólasalati

Hráefni
» 1600 g humarhalar í skel
» 6 stk. hvítlauksgeirar
» 1/4 búnt steinselja
» 200 g smjör
» 400g rúkólasalat
» ólífuolía
» sjávarsalt og pipar

Aðferð

Þíðið humarinn, kljúfið hvern hala í tvennt og takið görnina úr. Afhýðið hvítlauk og setjið í matvinnsluvél ásamt steinselju og mjúku smjöri. Maukið varlega saman. Smyrjið humarhalana vel með hvítlaukssmjörinu og kryddið með salti og pipar. Skolið rúkólasalatið upp úr ísköldu vatni, þerrið og setjið í skál. Blandið ólífuolíu saman við ásamt salti og pipar.

Hitið smjör á vel heitri pönnu og snöggsteikið humarhalana þegar smjörið er farið brúnast, á báðum hliðum, í um 30 sek.–1 mín. eftir því hvað hitinn er mikill. Berið humarhalana fram með rúkólasalatinu og t.d. hvítlauksbrauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar