Hagkaup
|
mbl
|
28. júní
Skelfiskragú með „foccacia“ brauði
- Hráefni
- » 200 g hörpudiskur
- » 200 g laxaflak
- » 200 g steinbítsflak
- » 200 g humarhalar, skelflettir
- » 100 g kræklingur, í skel
- » 200 g sveppir
- » 1 stk. rauð paprika
- » 3 stk. vorlaukar
- » 2 stk. stórir hvítlauksgeirar
- » 1 búnt fersk basilíkulauf
- » 2–3 msk. ólífuolía
- » 200 ml hvítvín
- » 1/2 lítri rjómi
- » sjávarsalt og nýmalaður pipar
Aðferð
Fræhreinsið papriku og saxið sveppi, papriku og vorlauka niður í hæfilega stóra bita. Skerið lax og steinbít í fallega gúllasbita. Snyrtið humarhala og hörpuskel. Afhýðið hvítlauk og merjið í mortéli með basilíku. Setjið ólífuolíu á pönnu og steikið hvítlauk og basilíku. Bætið saxaða grænmetinu saman við og mýkið á pönnunni. Hellið hvítvíni á pönnuna. Látið krauma stutta stund og bætið þá rjómanum út á. Setjið að lokum sjávarfangið saman við, fyrst lax og steinbít en humarhala og hörpudisk hálfri mínútu síðar. Látið krauma í um 2 mín. og smakkið til með salti og nýmöluðum pipar.Þessi uppskrift er notuð í Foccacia brauð
Meðlæti
Foccacia brauð
- Hráefni
- » 1 1/2 kg hveiti
- » 50 g salt
- » 50 g sykur
- » 50 g þurrger (um 5 bréf)
- » 1/2 lítri vatn
- » 2–3 msk. ólífuolía
Aðferð
Setjið hveiti, salt, sykur og þurrger saman í skál. Hnoðið rólega í hrærivél með því að hella volgu vatni (37°C heitu) út í smátt og smátt. Breiðið rakan klút yfir hrærivélaskálina og látið deigið lyfta sér í 20 mín. Skiptið deiginu niður í 100 g hluta og fletjið út. Ekki hafa áhyggjur af formi brauð-anna. Hitið hæfilegt magn af ólífuolíu á pönnu og steikið brauðin fallega gyllt. Brauðið er gott að krydda með ferskum kryddjurtum sem blandað hefur verið saman við ólífuolíu og sjávarsalt.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/580/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










