Kræklingur í hvítvíni með hvítlauk

Hráefni
» 2,5 kg kræklingur
» 4 stk. skalottlaukar
» 6 stk. hvítlauksgeirar
» 3 dl ólífuolía
» 3 dl hvítvín
» 4 dl rjómi
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Uppskriftin miðast við fjóra sem aðalréttur en réttinn má einnig bera fram sem forrétt og þarf þá að minnka magnið til samræmis við það.

Hreinsið kræklingsskeljarnar vel. Afhýðið skalottlauka og hvítlauksgeira, skerið smátt og setjið út í olíuna. Hitið olíuna á djúpri pönnu eða í potti. Setjið kræklingana út í og látið krauma vel. Hellið hvítvíni og rjóma á pönnuna og látið suðuna koma upp. Kryddið með salti og pipar. Rétturinn er tilbúinn þegar skeljarnar opna sig. Berið kræklinginn fram með brauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar