Hagkaup
|
mbl
|
28. júní
Skelfiskur í chili og engifer
- Hráefni
- » 250 g humarhalar
- » 250 g risarækjur
- » 250 g hörpudiskur
- » 250 g rækjur
- » 1/2 stk. chilialdin
- » 4 cm engiferrót
- » 1/2 stk. rauðlaukur
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 1/2 stk. rauð paprika
- » 1/2 stk. græn paprika
- » 4 dl olía
Aðferð
Skelflettið humarhala og risarækjur og hreinsið hörpudiskinn. Fræhreinsið chilialdin, afhýðið engiferrót og setjið hvort tveggja í matvinnsluvél og maukið ásamt 2 dl af olíunni. Afhýðið rauðlauk og hvítlauk og fræhreinsið papriku. Skerið papriku, rauð-lauk og hvítlauk í hentuga stærð. Hitið pönnu og setjið restina af olíunni á hana og steikið humar, hörpudisk og risarækjur í þessari röð. Bætið grænmeti og chilimauki á pönnuna og að lokum rækjum. þetta ferli má ekki taka langan tíma því skelfiskurinn á ekki að vera mikið eldaður. Með þessum rétti er gott að bera fram hrísgrjón.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/582/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









