Hagkaup
|
mbl
|
29. júní
Humar, hörpudiskur og rækjur í súrsætri sósu
- Hráefni
- » 400 g humarhalar
- » 300 g hörpudiskur
- » 300 g rækjur
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 1 stk. rauð paprika
- » 1/2 stk. græn paprika
- » 2–3 msk. olía
- » salt og pipar
Aðferð
Skelflettið humarhalana og hreinsið hörpudiskinn. Afhýðið rauðlauk og skerið hann ásamt rauðri og grænni papriku í strimla. Hitið olíu á pönnu og byrjið á því að steikja humarhala og hörpudisk. Setjið því næst grænmetið á pönnuna og steikið stutta stund. Hitið súrsætu sósuna að suðu og hellið henni yfir það sem er á pönnunni. Bætið þá rækjum saman við og kryddið með salti og pipar. Réttinn er gott að bera fram með hrísgrjónum.Þessi uppskrift er notuð í Súrsæt sósa
Meðlæti
Súrsæt sósa
- Hráefni
- » 1 stk. laukur
- » 1/4 stk. sítróna, börkur
- » 750 ml vatn
- » 250 ml sykur
- » 250 ml rauðvínsedik
- » 4 msk. tómatþykkni (tomato paste)
- » maizenamjöl
Aðferð
Afhýðið lauk og rífið niður sítrónubörk. Setjið lauk og sítrónubörk í pott ásamt vatni, sykri og rauðvínsediki. Sjóðið í um 45 mín. Takið þá af hitanum, setjið tómatþykknið út í og hrærið vel í pottinum. Hrærið saman smá vatni og maizenamjöli. Setjið pottinn aftur yfir til suðu. Hrærið maizenablöndunni smátt og smátt út í þegar sósan sýður.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/584/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










