Hagkaup
|
mbl
|
29. júní
Hvítlauksristaður humar í raspi
- Hráefni
- » 2 kg humarhalar í skel
- » 6 stk. hvítlauksgeirar
- » 300 g smjör
- » 1 dl hvítvín
- » 2 dl rjómi
- » 75 g brauðrasp
- » 1 búnt steinselja
- » ólífuolía
- » salt og pipar
Aðferð
Þessi uppskrift miðast við að humarinn sé hafður í aðalrétt en það má líka minnka magnið og bera réttinn fram sem forrétt.Kljúfið humarhalana í tvennt og fjarlægið görnina. Afhýðið hvítlauk og skerið smátt. Saxið steinseljuna smátt. Hafið smjörið við stofuhita og hrærið því saman við hvítlauk og steinselju. Raðið humarhölunum á disk, látið mjórri endann vísa inn að miðju og hafið aðeins eitt lag á diskinum. Setjið olíu á vel heita pönnu. Takið allan humarinn sem er á diskinum og setjið í einu lagi á pönnuna. Með þessari aðferð tryggið þið að humarinn verði jafnt eldaður. Steikið í 1–2 mín. Steikingartíminn fer eftir stærð humarsins.
Takið pönnuna af hitanum og hreyfið við humrinum. Bætið hvítvíni á pönnuna og látið krauma aðeins. Bætið hvítlaukssmjörinu á pönnuna og bræðið það við vægan hita. Hellið rjóma á pönnuna og bætið að lokum raspi saman við. Kryddið með salti og pipar og hrærið öllu vel saman. Gott er að bera brauð fram með þessum rétti, m.a. til að ná upp allri sósunni sem er einstaklega góð.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/585/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










