Rækjutortilla með mexíkóskri mangósalsa

Hráefni
» 500 g rækjur
» 1 stk. mangó ávöxtur
» 4 stk. tómatar
» 13–12 stk. chilialdin
» 1 búnt ferskt kóríander
» 1 stk. rauðlaukur
» 1 stk. lime, safi
» 2 msk. kornolía
» salt og pipar
» 1/2 haus jöklasalat
» 8 stk. tortillur

Aðferð

Þíðið rækjurnar og þerrið vel á eldhúspappír. Flysjið mangó og skerið í litla bita. Skerið tómatana í bita. Fræhreinsið chili og skerið smátt. Hakkið kóríanderlauf. Afhýðið rauðlauk og skerið í sneiðar. Blandið öllu saman í skál og látið rækjurnar saman við. Kreistið limesafa yfir og bætið ólífuolíu út í. Hrærið vel saman og saltið og piprið eftir smekk. Gott er að láta þetta standa í 1–2 klst., eða lengur, í kæli.

Áður en rækjublandan er sett inn í tortillurnar sneiðið á jöklasalat fínt og blandið saman við. Skiptið jafnt á tortillurnar. Brettið upp á endana og vefjið tortillunni utan um. Gott er að láta tortillurnar örstutt, í nokkrar sek., inn í örbylgjuofn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar