Ýsa í malasíu karríi með steiktum hrísgrjónum

Hráefni
» 1 kg roð- og beinlaust ýsuflak
» 1 msk. Mango curry marinade frá Hot Spot
» 1 msk. Wok Thai Style frá Hot Spot
» 2 dl kókosmjólk
» 1/2 rauð paprika skorin í strimla
» 1/2 rauðlaukur skorinn niður

Fyrir 4

Aðferð

Blandið saman öllu nema fiskinum. Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita. Setjið fiskinn í eldfast mót og hellið blandinu yfir. Einnig er hægt að setja þetta í skaftpott og elda á hellu.

Þessi uppskrift er notuð í Steikt hrísgrjón

Meðlæti

Steikt hrísgrjón

Hráefni
» 600 g soðin hrísgrjón
» 6 stk. vorlaukar
» 3 egg
» 2 hvítlauksrif
» ferskt kóríander
» salt
» pipar
» olía til steikingar

Fyrir 4

Aðferð

Hreinsið vorlaukinn og skerið í bita. Skerið hvítlaukinn smátt. Setjið olíu á pönnuna og síðan vorlaukinn og hvítlaukinn og svitið létt. Setjið síðan eggin út á og hrærið hraustlega til að fá þau eins og hrærð egg. Því næst eru grjónin sett út á og kryddað með salti og pipar. Að lokum er ferska kóríanderið sett út á.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar