Hagkaup
|
mbl
|
2. júlí
Grænmetisspjót á grillið
- Hráefni
- » 1 búnt ferskur kóríander, eða eitthvað annað ferskt grænt krydd
- » 6 msk. ristuð sesamolía eða græn ólífuolía
- » 1 sm biti ferskur engifer – afhýddur & smátt saxaður
- » 1 hvítlauksrif, smátt saxað eða pressað
- » 1 msk tamarisósa eða sojasósa
- » smá sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
- » 1 eggaldin, skorið í fernt og síðan í 1⁄2 sm bita
- » 1 rauð paprika, skorin í tvennt, fræhreinsuð og síðan skorin í 2 x 2 sm bita
- » 1 kúrbítur, skorinn í 1 sm sneiðar
- » 100 g tofu - firm, skorið í 1 x 1 sm bita
- » 16 sveppir
Fyrir 4
Aðferð
Skolið kryddjurtirnar og saxið þær mjög smátt eða merjið þær í mortéli. Blandið síðan olíu, hvítlauk, tamari/sojasósu og smá salti og pipar útí. Þræðið grænmetið og tofu upp á spjót, hellið kryddleginum yfir og marinerið grænmetið í 1/2 klst. Setjið spjótin í ofnskúffu og grillið þar til grænmetið er orðið gyllt og flott. Má líka grilla á útigrilli. Snúið spjótunum nokkrum sinnum við á meðan grænmetið er að grillast.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/595/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










