Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Túnfiskur með grænpiparsósu og „fondant kartöflum“
- Hráefni
- » 800 g túnfisksteikur (fást frosnar)
- » salt og pipar
Aðferð
Grillið túnfiskinn á vel heitu grilli í um 2 mín. á hvorri hlið og kryddið með salti og pipar. Berið túnfiskinn fram með grænpiparsósu, salati og kartöflunum.Þessi uppskrift er notuð í Grænpiparsósa Fondant kartöflur,
Meðlæti
Grænpiparsósa
- Hráefni
- » 1/2 stk. laukur
- » 1 dl fiskisoð
- » 1 dl hvítvín
- » 2 msk. grænpiparkorn
- » 2 dl rjómi
- » púrtvín
- » nautakraftur
Aðferð
Afhýðið lauk, saxið smátt og snöggsteikið í potti. Bætið fiskisoði, hvítvíni og grænum pipar út í og sjóðið niður. Bætið rjóma saman við og sjóðið varlega í um 1/2 mín. Bragðbætið með örlitlu púrtvíni og nautakrafti. Ef sósan er of þunn má þykkja hana með maizena- eða kartöflumjöli sem fyrst er hrært út í kalt vatn.Fondant kartöflur
- Hráefni
- » 4 stk. bökunarkartöflur
- » nauta- eða kjúklingasoð
Aðferð
Afhýðið hráar kartöflur. Kartöflurnar má hvort sem er djúpsteikja í olíu eða brúna á pönnu til að fá fallegan lit. Raðið kartöflunum síðan í eldfast form og hellið soðinu yfir þannig að það nái upp á miðjar kartöflurnar.Kjötsoð er hægt að búa til með því að blanda Oscar kjötkrafti út í vatn, leiðbeiningar eru á öskjunum. Bakið kartöflurnar í ofni við 180°C í 35–40 mín. Athugið hvort kartöflurnar eru steiktar með því að stinga prjóni í þær. Ef engin fyrirstaða er þá eru þær tilbúnar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/601/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









