Grillaður hlýri

Hráefni
» 800 g hlýri
» grill- og steikarolía
» sítrónupipar

Aðferð

Skerið hlýrann í 100–200 g sneiðar. Veltið sneiðunum upp úr grill- og steikarolíu og grillið á vel heitu grilli í um 2 mín. á hvorri hlið. Kryddið með sítrónupipar. Berið fram með fersku salati, bökuðum kartöflum eða „fondant kartöflum“ og heitri eða kaldri piparsósu.

Þessi uppskrift er notuð í Fondant kartöflur

Meðlæti

Fondant kartöflur

Hráefni
» 4 stk. bökunarkartöflur
» nauta- eða kjúklingasoð

Aðferð

Afhýðið hráar kartöflur. Kartöflurnar má hvort sem er djúpsteikja í olíu eða brúna á pönnu til að fá fallegan lit. Raðið kartöflunum síðan í eldfast form og hellið soðinu yfir þannig að það nái upp á miðjar kartöflurnar.

Kjötsoð er hægt að búa til með því að blanda Oscar kjötkrafti út í vatn, leiðbeiningar eru á öskjunum. Bakið kartöflurnar í ofni við 180°C í 35–40 mín. Athugið hvort kartöflurnar eru steiktar með því að stinga prjóni í þær. Ef engin fyrirstaða er þá eru þær tilbúnar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar