Skötuselur með sellerírótarmauki

Hráefni
» 800 g skötuselur
» salt og pipar

Aðferð

Hreinsið skötuselinn og skerið í jafna bita, kryddið með salti og svörtum pipar og grillið í 2–3 mín. á hvorri hlið. Berið fram með seljurótarmaukinu hvítlauksbrauði og salati. Einnig má hafa sósu að eigin vali með.

Þessi uppskrift er notuð í Sellerírótarmauk

Meðlæti

Sellerírótarmauk

Hráefni
» 1/2 stk. sellerírót
» 1 stk. laukur
» ólífuolía
» salt og pipar
» 1 dl rjómi

Aðferð

Afhýðið seljurótina og skerið í teninga. Afhýðið laukinn og saxið. Steikið seljurótarteninga og lauk í smá olíu á pönnu og kryddið með salti og pipar. Hellið rjómanum út á og sjóðið þangað til seljurótin er orðin mjúk. Bætið meiri rjóma saman við ef ykkur finnst þess þurfa. Setjið þetta í matvinnsluvél, maukið vel og smakkið til með salti og pipar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar