Lax í bananablaði

Hráefni
» 1 kg laxaflök
» 2 stk. lime-blöð
» 2 msk. chili-basilíkumauk
» 1 msk. sojasósa
» 1 msk. sítrónuolía
» salt og pipar
» 2 stk. bananablöð

Aðferð

Skerið laxaflökin í 4 stykki. Saxið lime-blöðin út í chili-basilíkumaukið og blandið sojasósu og sítrónuolíu saman við. Kryddið laxinn með salti og pipar og leggið síðan í kryddblönduna.

Klippið banablöðin í tvennt og setjið eitt laxastykki á hvert blað. Lokið bananablöðunum með því að pakka þeim utan um laxinn og loka með tannstönglum. Grillið laxinn í bananablöðunum á heitu grilli í nokkrar mín. Berið laxinn fram með sýrðum rjóma. Blandið jafnvel afganginum af kryddblöndunni út í sýrða rjómann og saltið örlítið.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar