Blandað spjót

Hráefni
» 400 g laxaflök
» 400 g skötuselur
» 400 g þorskhnakki
» 8 stk. risarækjur
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 5 msk. ólífuolía
» 4 msk. teriyaki sósa
» 2 sm engiferrót
» 4 msk. BBQ grillsósa
» 1 tsk. grænn pipar
» 4 stk. sveppir
» salt og pipar
» 1 msk. fáfnisgras (estragon)
» 4 sneiðar hráskinka
» 4 stk. kirsuberjatómatar

Aðferð

Skerið lax, þorsk og skötusel í 4 stykki hverja tegund. Afhýðið hvítlauk og pressið út í olíuna. Setjið hverja fisktegund á sér disk. Afhýðið og saxið engifer smátt. Setjið teriyaki á laxinn ásamt söxuðum engifer og 1 tsk. af hvítlauksolíu. Setjið grillsósu á skötuselinn ásamt 1 tsk. af hvítlauksolíu og myljið grænpiparinn yfir. Leggið heila sveppi í kryddið með skötuselnum. Kryddið þorskinn með pipar, saxið fáfnisgras yfir. Vefjið hráskinkunni utan um þorskbitana. Kryddið risarækjur með salti og pipar og 3 tsk. af hvítlauksolíunni. Þræðið fisktegundirnar upp á spjót. Setjið sveppi, kirsuberjatómata og rækjur á milli fiskbitanna til að spjótin líti sem best út. Smyrjið hvítlauksolíu á spjótin og grillið í nokkrar mín. á báðum hliðum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar